Ég fór í flugtúr í gær á Snæfellsnes. Dagurinn byrjaði á því að ég fór á Selfoss og sótti GPS tæki heim til bróður míns sem hafði notað það um daginn á gæsaveiðum. Eftir að búið var að ná í tækið var haldið til Reykjavíkur.
Á Reykjavíkurflugvelli hitti ég Dóra félaga minn og var vélin okkar sem er af gerðinni Diamond DA-20 Eclipse og heitir TF-FGA eða FRIÐRIK GUNNAR ALFREÐ tilbúinn til brottfarar. Dóri var þegar búinn að framkvæma fyrirflugsskoðun og setja á hana eldsneyti. Bara þurfti að slá inn kenntölu og nafn mitt í farþegaskrá og hringja inn flugplanið.
Við komum okkur fyrir í vélinni og fljótlega hófust við handa við tékklistana og vélinn rauk í gang stuttu seinna. Við fengum heimild eins og venjulega til að aka úr Fluggjörðum akveg GOLF í reynslutöðu við skýli 4. Þar héldu tékklistarnir áfram og vélin var keyrð upp. Eftir uppkeyrslu fengum við heimild til að aka bestu leið í brautarstöðu á braut 01.
Lokatékkið fyrir flugtak var framkvæmt:
FUEL PRIME OFF
FUEL PUMP ON
MIXTURE RICH
IGNITION BOTH
GEN/BAT SWITCHED ON
FLAPS TAKEOFF
TRIM NEUTRAL
Vélin var klár í brautarstððu og þegar að heimildin kom (FGA LEIÐ 1 OG HEIMILT FLUGTAK BRAUT O1) var vélinni gefið fullt afl, mótórmælar á grænu og stýra miðlínu.
Smá hliðarvindur frá hægri og vélinn var kominn í 1000 fet á augabragði. Leið 1 er 1500 fet hægra megin við Viðeyjarstofu, ákveðna eyju og að síðustu kennileiti sem heitir Tangi og þar kallar maður sig út úr flugvallarsviði Reykjavíkurflugvallar.
REYKKJAVÍK TURN FRIÐRIK GUNNAR ALFREÐ ÚT VIÐ TANGA
Fengum heimild til að skipta yfir á Reykjavík aðflug/brottflug 119.00 MHz og kölluðum okkur inn
REYKJAVÍK AÐFLUG FRIÐRIK GUNNAR ALFREÐ FRAMHJÁ TANGA Í 1500 FETUM Á LEIÐ Á STYKKISHÓLM FÖRUM UM SKAGA OG ÆTLUM AÐ KLIFRA Í 2500 FET
2500 fetin voru í lagi og við héldum leið okkar áfram. Veðrið var hið ákjósanlegasta og varla ský á himni. Framhjá Skaga kölluðum við okkur inn og héldum áfram um Borgarnes og upp á Mýrar og við flugvellinn á Kaldármelum kölluðum við okkur aftur inn þar sem að við erum við það að fara út úr aðflugsstjórnarsviði Reykjavíkur. Skipt var yfir á Landsbylgju en REYKJAVÍK FLUGSTJÓRN var hlustuð að gamni.
Við héldum 2500 fetunum allann tímann flogið var á Stykkishólm og þar tekin ein snertilending á flugvellinum. Áfram var farið framhjá Grundarfirði og Kirkjufellið skartaði sínu fegursta. Vængum var aðeins vaggað yfir Grundarfirði til heiðurs ....................................... Þið vitið það sem eigið að vita það. Áfram var haldið framhjá Ólafsvík, Hellissandi og á Rifi var lent og stoppað stutt.
Ég náði meira að segja að éta nokkur Krækiber á flugvellinum. Enda var ég nestislaus og varð að bjarga mér :-)
Cessna 172 vél Flugskóla Íslands að ég held TF-FTM var á flugvellinum og farþegar hennar og flugmaður sjálfsagt brugðið sér eitthvað.
TF-FTO tók líka eina snertilendingu á Rifi þegar að við vorum þarna. Strýturnar vestan við Snæfellsjökulinn voru skoðaðar. Það væri gaman að vita hvernig svona myndast.
Við fórum í loftið og upp í 2500 fet. Flogið var eftir suðurströnd Snæfellsnes og þar sem að veðrið var svo gott sást vel allt Reykjanesið. Það væri nú gaman að fara einhvern tímann beint yfir ef að maður væri á tveggja hreyfla vél. :-) En mikið svakalega eru fallegar þessu gulu strandir þarna á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Við Kaldármela kölluðum við okkur inn í aðflugsstjórnarsvið Reykjavíkur og gáfum umbeðnir um þær upplýsingar að við ætluðum að fara til Reykjaíkur um Skaga og að við myndum halda 2500 fetunum allann tímann. Mýrarnar tóku við og stórfenglegt útsýni þar sem að því er virðist endalausir pollar og sker heilla augað.
Framhjá Borgarnesi fórum við allnokkru vestar en áður og Framhjá Skaga gaf aðflugsstjórn okkur leyfi til að kalla okkur inn til Reykjavíkur.
REYKJAVÍK TURN FRIÐRIK GUNNAR ALFREÐ FRAMHJÁ SKAGA Í 2500 FETUM OG ÓSKUM EFTIR AÐ KOMA INN TIL LENDINGAR.
FRIÐRIK GUNNAR ALFREÐ QNH 1019, LEIÐ 1 FYRIR BRAUT 01 OG ATHUGA UMFERÐ Á MÓTI
Við svöruðum og á hægri hönd töluvert fyrir ofan okkur var fokkerinn að athafna sig og skömmu seinna fór TF-FGB framhjá okkur út leið 1.
Við fengum heimild á Kringluna og áttum að koma inn á hægri þverlegg fyrir braut 01
Lendingarheimild á braut 01 kom eftir að vél sem var í brautarstöðu 31 fór í loftið og við lentum á Reykjavíkurflugvelli. Ekið var sem leið liggur ECHO GOLF í fluggarða og þar með lauk skemmtilegri flugferð.
Við fórum svo í framhaldinu ég, Ísarr og Dóri upp í Mosfellsbæ og kíktum á flugvöllinn á Tungubökkum en þar var verið að sýna bæði flugvélar, bíla, mótorhjól, dráttarvélar, módel og svo voru vöfflur til sölu.
Um kvöldmatarleytið var grillað og ég var kominn heim um kl 11 um kvöldið.
Hérna áttu að koma kortamyndir af fluginu en það virkaði ekki. Þeir sem að hins vegar eru vinir mínir á fésbókinni geta séð myndirnar hér http://www.facebook.com/?ref=logo#!/album.php?aid=73985&id=1148637921
Vonandi hafa allir haft gaman af þessu.